08október

Djöfuls aumingjaskapur

Þetta er undarlegt.  Ég fékk alltaf svo mikla andgift (eða var það andagift?1? - var nú aldrei góður í íslenskunni) á gömlu heimasíðunni minni en heilinn á mér er bara með andlega hægðatregðu eftir að ég stofnaði þessa bloggsíðu.  Kannski er þetta bara svona klassísk ritstífla hmmmm eða er það hugtak kannski bara viðeigandi hjá rithöfundum?
Könnunin náttúrulega svaraði sér sjálf hehe, að sjálfsögðu finnst öllum maður skrifa of sjaldan - hefði kannski átt að spyra hve títt eðlilegt sé (og nægilega svalandi) að uppfæra bloggið sitt.  Ég myndi skjóta á svona 3-4 daga fresti sé fínt....fer náttúrulega eftir hvað líf manns er spennandi...hehe. 
Af okkur er annars allt fínt að frétta.  Addú litla orðin 5 mánaða 2.október s.l. og við erum að myndast við að prófa að gefa henni þunnan graut ... þvílíkan svip hef ég nú aldrei séð á ævinni hehe.  Var nú ekki alveg að fíla þetta þegar við prufuðum í fyrradag!  En það fór samt ofan í hana þetta litla sem við gáfum henni og mig minnir nú að Sigurður Mikael hafi brugðist mjög svipað við á sínum tíma.  Hún vill hinsvegar ekki sjá þurrmjólk þannig að Hildur verður að pumpa sig og safna ef við ætlum að fá pössun.
Sigurður er byrjaður í fótbolta hjá ÍR....ég sagði honum bara að Sveppi hefði verið í fótbolta þar þegar hann var lítill og þá var minn til ! 
Fórum í brúðkaup hjá Jóhönnu og Þresti í lok september og það var mjög fínt.  Hildur mín, Matta og Lilja vinkonur Jóhönnu voru með skemmtiatriði og það ekkert smá....búnar að æfa frumsamin texta til Jóhönnu við lag Queen "Don´t Stop Me Now" sem er í miklu uppáhaldi hjá þeim vinkonum 4, instrumental undirleikur (ég ætlaði að spila þetta á fína rafmagnsgítarinn en náði ekki að æfa þetta í tíma, frekar erfitt að spila og hratt) og þær voru með nettar danshreyfingar með þessu.  Brúðhjónin stóðu á gólfinu beint á móti þeim og höfðu mjög gaman af og salurinn fór allur á flug strax í fyrsta aðalerindinu.....alger snilld og heppnaðist mjög vel.
Af mér sjálfum er að frétta að ég er búinn að formlega ráða mig í Borgarnes í vetur og næsta sumar svo að það verður annar vetur af akstri dauðans alla daga.....það er samt búið að venjast fyrir löngu.  Maður bara notar þennan tíma vel fyrir sjálfan sig. 
Ég skal reyna að skrifa fljótar aftur og set sennilegast bara nýjar myndir og nýja könnun (ætla að hugsa eitthvað sniðugt út með það).

Kveðja, Viktor.
08. október 2007 klukkan 09:31
Viktor Davíđ Sigurđsson
1 athugasemd
19september

Nýjar myndir og fleira

Sælt veri gengið.  Frétti að hausverkjapistillinn minn væri farinn að valda höfuðverk hjá sumum þar sem hann væri búinn að standa svo lengi.  Það myndi þá flokkast undir spennuhöfuðverk sem viðkomandi hefur fengið Ullandi.  Svo eru komnar nýjar myndir...reyni nú að bæta úr þessu og setja oftar inn myndir.  Nei ég skal alveg skammast mín, síðasta færsla þann 6.september...það er náttúrulega bara ekki að ganga...samt er nú líf mitt ekki það spennandi að ég hafi eitthvað að skrifa um nema kannski á svona 2ja vikna fresti.  Ég skal þó reyna - en ég mun ekki falla í þá gryfju að skrifa daglegar færslur um mitt daglega amstur sem að engum er gagn eða gaman að (það er til fólk sem að gerir þetta!....vaknaði klukkan 7:12...burstaði tennurnar og fór svo fram uuu, nei ég fór fyrst fram og svo burstaði ég ...... WHAT!  Gaman að lesa svona blogg).
Allavega.....það hefur svo sem ýmislegt skemmtilegt drifið á daga mína frá síðustu færslu.  Síðasta vika hafði maður t.d. í nógu að snúast.  Pókerkvöld með strákunum á fimmtudeginum, alltaf gaman að því (hægt að lesa allt um það á http://asp.internet.is/viktor).  Á föstudeginum var svo steggjun á Þresti hennar Jóhönnu vinkonu Hildar.  Tókum drenginn úr vinnunni og keyrðum á Stokkseyri og þar var farið á Kajak á einhverjum ísköldum polli.  Allir fengu svona hefðbundna báta nema steggurinn, sem fékk barnakajak en þeir eru mjög valtir.  Þar fyrir utan varð hann skotspónn flestra og fór út í a.m.k. 5-6 sinnum.  Undirritaður fauk út í rimmu sinni við steginn og getur staðfest að vatnið var KALT!  Skellltum okkur í sundið þarna á staðnum og tókum nettan sunbolta þar, síðan stefnan í bæinn og borðað á Ruby Tuesday.  Þar fékk hann vatn og brauð meðan við hinir hámuðum í okkur grillsteikur og staupaður út og suður.  Síðan var endað á Players þar sem Paparnir voru að spila.  Fínt kvöld í það heila. 
Læt þetta duga í bili. 
19. september 2007 klukkan 22:51
Viktor Davíđ Sigurđsson
1 athugasemd
06september

Pistill: Höfuđverkur

Flestir vildu pistil um höfuðverk svo hér hafið þið hann.  Endilega commenterið, hvort heldur það eru spurningar eða athugasemdir.

"Ég er alltaf með hausverk!  Þetta getur ekki verið eðlilegt læknir, ég bara hlýt að vera með æxli eða allt of háan blóðþrýsting...er ekki hægt að gera einhverjar rannsóknir?"

Höfuðverkur er mjög algengt einkenni sem að nær allir ef ekki allir finna fyrir einhvern tímann á lífsleiðinni.  Hann sem slíkur er ekki sjúkdómur heldur einkenni og óþarfi er að eyða plássi hér í að skilgreina höfuðverk þar sem flestir ættu að kannast við slík óþægindi.  Einnig fer það yfirleitt ekki á milli mála hvort um höfuðverk sé að ræða eða eitthvað annað svo sem eyrnaverk, tannpínu eða verk í auga svo dæmi sé tekið. 
Ég vil síður gera þennan pistil að langloku svo ég mun tala um algengustu orsakir fyrir höfuðverk og til að koma því strax frá þá eru heilablæðing, æxli og háþrýstingur allt sjaldgæfar orsakir höfuðverkjar.  Eins og áður sagði er tíðni höfuðverkjar mjög há almennt og segja mætti að á hverju ári fá 85% fullorðinna einstaklinga höfuðverk 1x eða oftar og 38% allra fullorðinna munu fá höfuðverk á næstu 2 vikum!  Þessar tölur eru sennilegast aðeins mismunandi milli landa og rannsókna en þetta er úr einni slíkri og gefur ágæta mynd af algenginu.
Nokkrir punktar til að byrja með:
- Um 10% fullorðinna eru með mígreni og allt að fjórðungur þeirra þurfa læknishjálp vegna þess.
- 5% barna yngri en 11 ára eru með mígreni.
- 70% þeirra sem þjást af höfuðverkjum eiga nána ættingja með mígreni.
- Ef saman fara  höfuðverkur+svimi+uppköst hjá börnum verður að afsanna æxli í heila, áður en aðrar saklausari greiningar eru settar á barnið.
- Lyf sem orsök fyrir höfuðverk vill oft gleymast (og jú stelpur....pillan er lyf líka :) )
- Alltaf skal taka slæman höfuðverk sem kemur eins og að viðkomandi hafi skyndilega verið laminn með kylfu alvarlega og leita strax læknis.

Algengasta orsök fyrir bráðum höfuðverk er öndunarfærasýking s.s. kvef, hálsbólga eða skútabólga sem dæmi.
Algengustu orsakir fyrir krónískum og endurteknum höfuðverk eru spennuhöfuðverkur og mígreni.
Þunglyndi og aukaverkun lyfja eru lúmskar orsakir fyrir höfuðverkjum, sem gjarnan vilja gleymast.
Algeng lyf/efni sem valda gjarnan höfuðverkjum: Áfengi, magnýl og kódínlyf ss parkódín (fráhvarfið), sum blóðþrýstingslyf, koffín, Asýran (magasýrulyf), nikótín, og Pillan sem dæmi.

Eitt enn áður en ég renni yfir einkenni tveggja algengustu krónísku tegundanna...það getur verið gríðarlega hjálplegt fyrir lækninn ef þið eruð búin að skrá niður svona nokkurnveginn hvernig mynstrið er á verkjunum yfir yfir t.d. 1 mánuð (t.d. verkurinn skalar 8 af 10 kl. 16 og er þá langverstur.  Skástur á morgnana og kvöldin).

Spennuhöfuðverkur.
Annað lélegt orð yfir þessa gerð höfuðverkjar væri vöðvabólguhöfuðverkur eða vöðvaspennuhöfuðverkur.  Venjulega beggja vegna í höfðinu (symmetrískur) og tilfinningin oft eins og verið sé að strekkja banda utan um höfuðið eða að þungt lóð hvíli á höfðinu.  Stöðugur (ekki púlserandi).  Streita og svengd eykur verkinn, áfengi slekkur á verknum.  Hreyfing hefur venjulega ekki áhrif á verkinn.  Stendur oftast yfir í nokkrar klukkustundir og kemur gjarnan á hverjum degi eða allavega flesta daga.  Leggur oft niður hálsinn að aftan en hefur upptök frá enni og hvirfli, jafmvel gagnauga, sitthvorumegin.  Ógleði, uppköst, hljóðfælni, ljósfælni eru EKKI fylgifiskar í þessari gerð höfuðverkjar.  Gjarnan helst þetta í hendur við stirðan hálshrygg og/eða streitu.  Mjög algengt er síðan að viðkomandi geri sér ekki sjálfur grein fyrir að hann eigi við streitu að stríða.  75% þeirra sem fá þetta eru konur.  Meðferð er yfirleitt einföld þ.e.a.s. allt sem minnkar streitu og slakar á vöðvum og svo má nota einföld lyf eins og Paratabs, Íbúfen eða Voltaren.

Mígreni.
Nokkrar tegundir til.  Algengara í konum.  Algengasti aldur milli 20 og 50 ára.  Streita er einn algengasti "trigger" þátturinn fyrir mígrenikasti en gríðarlega margt sem hefur verið bendlað við upphaf á kasti s.s. súkkulaði og ýmsar aðrar fæðutegundir, áfengi, skært ljós, árstíðaskipti, svengd o.fl. o.fl.  Stundum fylgir þetta blæðingum.  Venjulega öðru megin í höfðinu en getur þó verið beggja vegna, leiðir oft bakvið augu og/eða aftur í hnakka.  Þungur og púlserandi oft.  Oftast 1-2x í mánuði hjá þeim sem hafa þetta.  Stendur yfir að meðaltali í 6-8 klst (getur þó staðið yfir í allt að 72 klst).  Í klassísku mígreni fá sjúklingar "áru" (aura) fyrir kastið og er þá um ýmsar upplifanir að ræða.  Sumir bara finna þegar þeir eru að fara að fá kast, aðrir fá flyksur fyrir augun eða aðrar sjóntruflanir og stundum dofa í andlit eða hendur.  Síðan kemur mjög slæmur höfuðverkur og oftast ljósfælni, lyktarfælni, hljóðfælni + ógleði og uppköst.  Allt þetta leiðir til þess að sjúklingur vill helst fá að fara undir sæng samstundis í rólegu og dimmu herbergi og helst með kaldan þvottapoka á sér og reyna að sofna.  Meðferð er númer eitt að reyna að forðast trigger þættina (margir mígrenisjúklingar vita alveg hvað kemur "þeirra" mígreni af stað.  Byrja skyldi að reyna fyrrnefnd hefðbundin verkjalyf en stundum þarf að fá lyf hjá lækni.  Þeim sem að dugir helst að sofna til að losna við verkinn getur verið gott að taka eina róandi töflu áður en lagst er upp í rúm en þær þarf að sjálfsögðu að fá hjá hjá lækni.  Sumir vilja eiga ógleðistíla (töflur gera lítið gagn þegar ógleðin er byrjuð, svo ekki sé talað um uppköst).  Ef köst eru tíðari en ásættanlegt þykir þá getur fólk þurft fyrirbyggjandi meðferð en hún virkar mjög vel á flesta sjúklinga.

Að lokum ætla ég að telja upp svokölluðu Rauð flögg en það eru merki um að vissara sé að leita læknis til frekari skoðunar en þessi flögg GETA bent til alvarlegrar ástæðu höfuðverkjarins:
- Mjög skyndilegur og slæmur höfuðverkur
- Hiti
- Uppköst
- Breyting á meðvitund
- Verri við að beygja sig eða hósta
- Verstur snemma morguns eða vaknar við höfuðverk
- Dofi, vöðvamáttleysi eða önnur taugaeinkenni
- Nýr höfuðverkur hjá >50 ára (venjulega minnkar tíðni höfuðverkja eftir því sem fólk eldist).

Og muna svo að kommentera.....þetta er að sjálfsögðu ekki tæmandi fyrir orsakir höfuðverkja en tekur á stærstu og algengustu orsökunum.

06. september 2007 klukkan 23:05
Viktor Davíđ Sigurđsson
3 athugasemdir
31ágúst

Fyrsta tönnin!

Jæja, Hildur fann fyrstu tönnina hjá Arnþrúði Karen í dag - 31.ágúst 2007 - rétt tæplega 4 mánaða.  Okkur hefur nú fundist hún almennt vera eitthvað fyrr í flestu en Sigurður og þegar við kíktum á hans bók þá var hann að fá sína fyrstu tönn í október, allavega 2 mánuðum síðar en Addú er að fá!
31. ágúst 2007 klukkan 23:28
Viktor Davíđ Sigurđsson
2 athugasemdir
31ágúst

Ljósaskiltiđ undarlega

Smá viðbót varðandi þetta dularfulla ljósaskilti sem að stendur ekki langt frá Hvalfjarðargöngun að sunnanverðu.....í fyrsta lagi þá stendur ekki góða ferð á því heldur "Akið varlega" en það er svo sem aukaatriði.  Í öðru lagi þá fékk ég í dag veður af því hvaða tilgangi þetta einmanna skilti þjónaði fyrir utan að vera dýr kurteisiskveðja frá umferðarráði....þetta ku semsagt vera hæðarmælir þ.e.a.s. það eru víst nemar sitthvorumegin við götuna sem að þá nema ef eitthvað krossar línuna á milli þeirra og það stendur í tiltekinni hæð yfir jörð og er til þess gert að vara ökumenn stórra flutningabíla við að bíll þeirra sé of hár fyrir göngin.  Sennilegast er þetta vegna þess hve títt menn hafa ekið á skiltið sem alltaf var þarna í sama tilgangi (danglaði þvert yfir veginn í ákveðinni hæð) og þ.a.l. samanlagður kostnaður af því að skipta um það skilti sí og æ sennilega verið orðinn helst til hár.  Þannig fá menn bara viðvörun á skiltinu (ætli það komi ekki áberandi rauður textir eða annað slíkt) um að bíllinn sé of hár og geta þá tekið Hvalfjörðinn í stað þess að skemma ýmist skilti og/eða bílinn.....Þar hafiði það!  Svo hefði maður náttúrulega bara geta farið á heimasíðu Spalar og fundið frétt um þetta döh...Saklaus...

http://www.athygli.is/Index/FrettaveitaAthygli/Spolur/Nanar/708
31. ágúst 2007 klukkan 09:57
Viktor Davíđ Sigurđsson
1 athugasemd
29ágúst

Allt og ekkert.

Hmmm....langt frá síðastu færslu....enda svo sem ekki margt og merkilegt að gerast hjá manni á hverjum einasta degi....þó það nú væri !  Og hvað er nú að frétta.....jaa, ég get sagt ykkur að augun eru öll að koma til og ég hef ekkert þurft að nota augndropa núna í um 2 vikur.  Vinstra augað hefur samt ekki alveg náð jafn langt í sjónskerpu eins og það hægra og mældist ég með smávegis sjónskekkju þeim megin og einhverjar smá "bylgjur" á hornhimnunni sem gætu verið að skýra út "draug" sem ég sé stundum útfrá hlutum (kemur og fer, sýnu verst þegar ég er nývaknaður).  Augnlæknirinn sagði að það væru 50% líkur á að ég missti sjónina þeim megin......DJÓK!  (bara að athuga hvort þið væruð að lesa af athygli Ullandi).  Hann ætlar að meta þetta aftur 3 mánuðum eftir aðgerð og ef þessi sjónskekkja hefur ekki réttst af af sjálfu sér þá er möguleiki á að lyfja flipanum á ný og skella nokkrum lasergeislum á þetta til að fullkomna verkið.  Allavega......þetta er allt það lítilvægt að ég finn ekki fyrir þessu dags daglega og þannig mikill munur á að vera laus við gleraugun...stend mig samt alltaf að því að leita eftir gleraugunum á borðinu á morgnana svona alveg fyrst þegar ég er nývaknaður.....svo er annað að mér finnst oft eins og ég sé með gleraugun á mér. 

Hvað er framundan í september....aðalmálið er náttúrulega brúðkaup Jóhönnu og Þrösts í lok september.  Mamma og pabbi koma heim frá Spáni næstu helgi eftir 3ja vikna ferð til Þóru og Stefáns sem búa um klukkustund norður frá Barcelona í litlum bæ.  Ég er byrjaður aftur í "skólanum" ef svo má að orði komast en þá á ég við fundi sem ég sæki á 2ja vikna fresti með öðrum læknum í sérnámi til Heimilislækninga þar sem við förum yfir ákveðin efni, höldum fyrirlestur o.fl. slíkt....a.ö.l. snýst nú þetta nám aðallega um að vinna og ná sér í reynslu þannig.  Addú Karen er að smella í 4 mánaða aldurinn.....farin að grípa í hluti og hafa þannig aðeins meiri stjórn á höndunum, bablar út í eitt og alltaf hress....heldur farin að minnka áhuginn á að liggja lengi.  Styttist í að fari að sitja upprétt.  Peyjinn er í sínum leikskóla og kominn í elstu barna hópinn.  Hann ætlar að fara að æfa fótbolta hjá ÍR ásamt vini sínum Hjálmari Tuma....Eiður Smári byrjaði jú í ÍR er það ekki?

Eins og allir vita þá keyri ég fram og til baka í vinnuna og eitt finnst mér alveg undarlegt en það er forláta rafrænt textaskilti sem stendur þarna hægra megin þegar maður er að koma að göngunum að sunnanverðu.  Ég hef aldrei séð neitt annað standa þar en "góða ferð" eða eitthvað álíka .... dýr ferðakveðja það Brosandi....kannski er  hugmyndin sú að nota þetta skilti í vetur meira þegar færð fer að verða vandamál, til að vara menn við tilteknum leiðum....skal ekki segja.

Jæja, nóg í bili....endilega kommentera, það er það sem heldur manni gangandi að skrifa (jú og reyndar teljarinn sem sýnir að mínir tryggu 12-15 kíkja á síðuna á hverjum degi hehe).  En betur má ef duga skal.  Lofa nýjum myndum fljótlega og svo koma stuttir pistlar fljótlega um efnin sem ég nefndi í könnunni.  Bæjó í bili.
29. ágúst 2007 klukkan 21:19
Viktor Davíđ Sigurđsson
2 athugasemdir
24ágúst

Teiniđ komiđ í hús aftur

Eftir að hafa "misst" heilbrigðisskírteinið fyrir flugið tímabundið vegna LASER aðgerðarinnar þá fékk ég það aftur í dag og nú án takmarkana a.k.a. "Fit for flying without correcting glasses" - újee. 
Til fróðleiks ætla ég að telja upp helstu heilbrigðiskröfur fyrir flugmann og tekið skal fram að ég tók mér eingöngu 2.flokks skírteini en 1.flokks skírteinin eru fyrir atvinnuflugmenn og talsvert stífari kröfur en fyrir 2.flokk.

Fyrst ber að geta þess að Heilbrigðisskírteinið sem slíkt getur aldrei gilt lengur en 60 mánuði en það á við þá sem eru yngri en 30 ára.  Gildistími er 2 ár fyrir 30-49 ára, 1 ár fyrir 50-64 ára og 6 mánuðir fyrir 65 ára og eldri!  Þetta mætti nú að ósekju gilda fyrir bifreiðar að mínu mati eða allavega eitthvað í þessa átt en það er önnur umræða. 
Til að byrja með er svokölluð "Fyrsta skoðun" í svokölluðu "Fluglæknasetri" en það er ítarleg heilbrigðisskoðun hjá "Fluglækni" en það er sérfræðingur sem hefur þessi réttindi ofan á sín venjulegu daglegu störf.  T.a.m. þá er einn þeirra Hjartalæknir, annar er Smitsjúkdómalæknir o.s.frv.  Þessa skoðun þarf eingöngu að fara í einu sinni þ.e. í fyrsta skiptið eins og nafnið gefur til kynna.  Fluglæknir gerir almenna líkamsskoðun og "ástandsskoðun" á viðkomandi, tekur sýni úr fingri til að meta magn blóðrauða (hemoglobin - sem sér um að flytja súrefni um blóðið), tekur þvagsýni (fyrst og fremst mat á nýrnastarfssemi en getur líka gefið vísbendingar um fleiri vandamál), gerir augnskoðun (fyrir 1.flokk þá þarf að fara til fluglæknis sem er einnig augnlæknir) og háls-, nef- og eyrnaskoðun (1.flokkur fer til HNE læknis).  Auk þessa gerir hann heyrnarpróf á manni sem og svokallaða "spírómetríu" (mat á lungnastarfssemi).  Ef hann metur svo þá getur hann gert frekari rannsóknir og þá er sérstaklega átt við hjartalínurit, heilalínurit, röntgenmynd af hjarta og lungum og frekari blóðprufur t.d. kólesteról (ef að viðkomandi hefur 2 eða fleiri áhættuþætti hjarta- og kransæðasjúkdóma eða er orðinn 40 ára).
Síðan þarf að viðhalda skírteininu með reglubundnum hætti og eykst tíðnin að sjálfsögðu eins og fyrr er gefið í skyn eftir því sem flugmaður eldist.  Þannig þarf hann að fara í hjartalínurit á 2ja ára fresti ef 40-49 ára, árlega ef 50-64 ára og á 6 mánaða fresti ef eldri en 65 ára.  Heyrnarprófið þarf að fara í með 5 ára fresti ef yngri en 40 ára og 2ja ára fresti ef eldri en 40 ára.  Loks þarf að fara í "spírómetríuna" fyrrnefndu við 30, 35, 40 ára aldur, svo á 4 ára fresti eftir það.

Sem dæmi þá fer ég næst í almenna skoðun 2008 (ekki eins ítarleg og fyrsta skoðun), hjartalínurit 2011 (þá fertugur) og heyrnapróf 2014.

Bestu kveðjur og endilega commenterið nú á skrifin...það var nú ekki lítið kvartað yfir því að það væri ekki hægt á gömlu síðunni Glottandi
24. ágúst 2007 klukkan 18:43
Viktor Davíđ Sigurđsson
2 athugasemdir
21ágúst

Hlakkađi í mér í morgun...

Eins og flestir vita þá keyri ég frá Breiðholti og í Borgarnesið að jafnaði 15 ferðir fram og til baka í hverjum mánuði og hef því ágætt sýnishorn af almennri umferð úti á vegum - allavega þessarri leið.  Sjálfur keyri ég að jafnaði á 95 km hraða á klst skv. mæli bílsins og hef reiknað út með GPS að þá sé ég á nákvæmlega 90 km/klst.  Ekki er það eingöngu af löghlýðni þótt það sé vissulega keppikefli mitt að vera löglegur í einu og öllu, heldur einnig það að á þessum hraða er þægilegast að keyra þennan bíl m.v. gírana og svo það sem er ekki síður mikilvægt að á þessum hraða virðast FLESTIR keyra.  Fáir ef nokkrir að fara fram úr (og það þá einhver sem vill vera á 5 km meiri hraða ) og sjaldan sem ég þarf að fara fram úr (einn og einn á 80-85).  Engar öfgar í gangi allavega.
Í morgun var ég svo að keyra í mínum makindum með Cheerios turtildúfurnar á Bylgjunni í eyrunum þegar ég sé bláan bíl í baksýnisspeglinum nálgast óvenju hratt og síðan brunar hann fram úr mér með miklu offorsi.  Ef ég ætti að giska á muninn á hröðum okkar þá hefur sá munur verið a.m.k. 40 km ef ekki meiri.  Eins og flestir þá bölvaði ég honum í sand og ösku og íhugaði að hringja í lögguna í Borgarnesi en gerði það ekki....veit aldrei af hverju maður gerir það aldrei.  Hlakkaði svo hressilega í mér þegar ég kom yfir næstu hæð, sá blikkandi ljós og þá hafði kappinn verið böstaður....vúhú!  Ég renndi framhjá og brosti af mér höfuðið.  Ég var svo varla kominn yfir Borgarnesbrúnna þegar gæjinn var kominn aftur í stuðarann  hjá mér og um það leyti sem ég var að hægja á mér fyrir síðustu beygjuna inn að Heilsugæslunni var hann svo nálægt mér að hefði ég aðeins tyllt lítillega aukalega á bremsuna þá hefði hann rekist á mig....þetta var einhver gæji með stelpu í framsætinu hjá sér.....ég vil ekki vera fordómafullur en af einhverju orsökum hafði ég einmitt séð fyrir mér slíkan ökumann en ekki einhvern eldri.

Hvað finnst ykkur að eigi að gera til að stemma stigu við þessu ofsa-aksturs pakki?  Látið nú í ljós skoðanir ykkar í athugasemdir.
21. ágúst 2007 klukkan 19:25
Viktor Davíđ Sigurđsson
Engin athugasemd
20ágúst

Helgin og síđasta könnun.

Sælt veri fólkið.

Ég sé að það eru svona um það bil 10 manns sem líta við á síðunni á degi hverjum, ég vona að þetta séu fjöldi manns en ekki bara flettingar hehe. 
Það fór eins og ég hélt að helgin yrði róleg.  Þetta voru í heildina um það bil svona 20 manns í mesta lagi og ekkert af því alvarlegt og aðeins 2 vitjanir á stöðina að nóttu, sitthvora nóttina.  Fékk Hildi og krakkana uppeftir á lau.deginum um  hádegi og fóru ekki fyrr en seint á sunnudegi.  Fórum í göngutúra og dunduðum okkur og Sigurður virtist ekkert verða pirraður því ég þurfti svo sjaldan og stutt í einu að skreppa frá.
Ekki skemmdi fyrir veðrið sem var eins og í júní þegar best lét.  Er í vaktafríi í dag.  Næst á vakt miðvikudag og fram á föstudagsmorgun og á þá frí restina af föstudeginum og svo alla helgina - mjög þægilegt fyrirkomulag.  Lengir helgina um alveg helling.  Svo hittir í þokkabót þannig á að ég er í fríi á næsta mánudegi líka því ég þarf að vera á kennslufundi í Rvk eftir hádegi.  Þessir kennslufundir eru hluti af námi mínu í Heimilislæknisfræði og fara þannig fram að ég mæti á Heilsugæslustöðina í Efstaleiti annan hvern mánudag og hitti þar hóp af öðrum námslæknum í Heimilislæknisfræði og farið er yfir hin ýmsu efni á 4 tímum. 

Síðasta könnun var jákvæð fyrir mig en af 12 sem tóku þátt (ekki nógu góð þáttaka að mínu mati - hint til þeirra sem lesa síðuna en svara ekki könnuninni Glottandi) þá voru 9 sem vildu fljúga með mér og 3 sem voru greinilega flughræddir.  Það verður nú lítið mál að sannfæra þessa 3 um hve öruggt flug lítilla flugvéla er nú samt.  Eins og ég sagði á hinni síðunni minni (fara á linkinn "Viltu í túr" undir liðnum "Flugið") þá er ég að bjóða fólki að koma í flugtúr fyrir ekki neinn pening að neinu viti, sérstaklega ef 3 taka sig saman og koma með.  Ég mun alltaf borga minn hlut og þá stendur eftir 6000 kr/3 = 2000 kr per 1 klst flugs.  Og munið: Maður borgar BARA fyrir flugtímann, ekki tímann sem vélin situr kyrr t.d. ef maður vill fljúga eitthvert og stoppa í kaffi!  Endilega látið mig vita....sumarið er að klárast.  Ef ykkur finnst þetta of dýrt en viljið fljúga þá bara senda mér póst á viktor@internet.is og þá hef ég ykkur í huga ef ég ætla að fljúga og engin að fara með hvort eð er.

20. ágúst 2007 klukkan 23:21
Viktor Davíđ Sigurđsson
Engin athugasemd
16ágúst

Helgin

Jæja þá er það næst á dagskrá vakt um helgina.  Reynum að áætla vaktaálagið sem ég mun verða fyrir.
Mín stutta sumarreynsla í Borgarnesi segir mér að það ætti að vera farið að minnka talsvert af fólki á svæðinu um helgar þetta seint í ágúst og þess utan þá vona ég að sú hundalógík að ein stærsta hátíð Reykjavíkur á sér stað þessa helgi leiði til þess að fólk fari síður að þvælast uppeftir í sumarbústaði eða útilegur.  Hinsvegar samkvæmt sömu lógík ætti þó einhver umferð að vera á föstudegi og sunnudegi í gegnum héraðið vegna Danskra Daga í Stykkishólmi.  Það er ekkert sérstakt á seyði í Borgarfirðinum, ekki nein hátíð eða annað sem ætti að laða fólk þangað.  Veðurspáin er reyndar ágæt fyrir svæðið, allavega föstudag og laugardag en á sunnudag mætir einhver lægð á svæðið með tilheyrandi haustveðri.  Svo er náttúrulega alltaf stór óvissuþáttur sem getur alveg eyðilagt helgarnar þrátt fyrir að maður fái ekki marga hausa per se en það eru stórslys eða að vera mikið vakinn að nóttu en verst er að vera bæði vakinn aðfararnótt lau.dags+sun.dag en þá er maður alveg búinn á því á sunnudegi vegna svefnleysis. 
16. ágúst 2007 klukkan 21:55
Viktor Davíđ Sigurđsson
1 athugasemd

Ađalvalmynd

Atburđarteljari

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Ţessi bloggsíđa er uppfćrđ...

Leit